top of page
Writing Music
Leiðréttar síður
Music Notes
Aukalög

Væntanleg

Gítar-leikur Áfram veginn er fjórða bókin í seríunni Gítar-leikur.

Bókin er sjálfstætt framhald bókarinnar Tvíröddun og er markmið bókarinnar að halda áfram í uppbyggingu og þróun klassísku gítartækninnar og eru verkefni og æfingar settar upp með það markmið í huga.  Lagavalið inniheldur tónlist frá öllum tímabilum tónlistarsögunnar í bland við æfingar og verk höfundar.  Einnig verður haldið áfram með skapandi þáttinn eins og verkefni í spuna og að semja lög.  Bókin er byggð upp í köflum og byrjar hver kafli með tónstigum, brotnum hljómum og æfingum í þeirri tóntegund sem lög kaflans byggjast á.  Ný tækni er kynnt og þjálfuð í verkefnum og lögum bókarinnar eins og t.d. bogar, flaututónar og tremolo.

bottom of page